Hér má nálgast Áttina, umsóknarvefgátt fræðslusjóða
Fyrirtækjastyrkir
Símenntun er hagur allra!
Til þess að takast á við breytingar og þróun þá er menntun ein af þeim leiðum sem vænleg er til árangurs. Mikilvægt er að starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja taki höndum saman og eigi sameiginlegt frumkvæði að starfsmenntun og sí-og endurmenntun. Fyrirtæki, stéttarfélög og eða fræðsluaðilar sækja um styrki til stjórnar Landsmenntar með því að senda umsókn þar sem fram koma helstu upplýsingar vegna viðkomandi fræðsluverkefnis. Tekið er á móti umsóknum um styrk í gegnum umsóknarvefgáttina www.attin.is sem er einnig aðgengileg hér á heimasíðu Landsmenntar. Umsóknin er tekin til afgreiðslu hjá stjórn Landsmenntar og vinnur hún skv. eftirfarandi viðmiðunarreglum við úthlutanir styrkja: Rekstur starfstengdra námskeiða styrkt að hámarki 90% af viðurkenndum kostnaði. (Gildistími frá 1. jan. 2024 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem hefst eftir þann tíma). (Síðasta breyting gerð í des. 2024).
Ath. nýjar reglur taka gildi gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir 1.jan.2024.
- Almennur styrkur vegna námskeiða er 90% (Gildistími frá 1. jan. 2024 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem hefst eftir þann tíma) en getur þó aldrei orðið meiri en sem svarar kr. 40.000.- á kennda klst. Tómstundarnámskeið eru styrkt um 50% af kostnaði.
- Athugið að greitt er að hámarki kr. 300.000.- í styrk vegna náms/námskeiða pr. starfsmann.
- Fyrirtæki utan SA eru styrkt að hámarki 90% af því sem fyrirtæki innan SA fá í fræðsluverkefni. f.o.m. 1. jan. 2024.
- Tölvu-og tungumálanámskeið hjá fyrirtækjum eru styrkt skv. almennum reglum enda teljast slík námskeið ávallt starfstengd.
- Vinnuvélanámskeið styrkt beint til fyrirtækja sem starfstengd námskeið skv. almennum reglum.
- Íslenskunám fyrir erlenda starfsmenn eru styrkt til fyrirtækja skv. almennum reglum af þeim kostnaði sem eftir stendur eftir fjármögnun menntamálaráðuneytis á þeim námskeiðum. Lagt er til að námskeiðin verði þá einstaklingunum sjálfum að kostnaðarlausu. Einnig eru fyrirtæki hvött til þess að bjóða upp á íslenskunámskeiðin á vinnutíma þegar þess er kostur.
- Þá er boðið upp á verkefnið Fræðslustjóra að láni en þar er um að ræða samning sem gerður er um tiltekinn tímafjölda vinnu utanaðkomandi fræðslu-og mannauðsráðgjafa sem fer yfir skipulag þjálfunar og fræðslu fyrirtækisins. Niðurstaðan er fræðsluáætlun sem er sérsniðin að þörfum viðkomandi fyrirtækis. Samstarf fleiri sjóða f.o.m. árinu 2008.
- Námskeið erlendis: Fyrirtæki sem óskar eftir að senda starfsmenn á námskeið erlendis, getur sótt um 90%(81% ef utan SA) af viðurkenndum kostnaði. Styrkur getur þó ekki orðið hærri en kr. 300.000.- vegna hvers starfsmanns og þar af getur ferðakostnaður ekki orðið meiri en sem nemur kr. 100.000.- af heildarupphæð styrks. Ef sambærilegt námskeið er í boði innanlands er ferðakostnaður undanskilinn heildarkostnaði og því ekki styrktur.
- Náms- og kynnisferðir: Landsmennt veitir ekki styrk til fyrirtækja vegna náms- og kynnisferða til útlanda.
- Afstaða stjórnar til styrkveitinga í þróunarverkefni, stærri fræðsluverkefni og námsefnisgerð er metin hverju sinni út frá eðli verkefnanna.
- Veittir eru þróunar-og nýsköpunarstyrkir í rafrænt námsumhverfi fyrirtækja, uppsetningu og þróun. Stjórn sjóðsins metur slíkar umsóknir hverju sinni. Áskrift að rafrænu námsumhverfi/námskerfi er styrkt um 90% (81% ef utan SA) af reikningi í hlutfalli við fjölda starfsmanna sem aðild eiga að sjóðnum. Aldrei greitt meira er sem nemur kr. 6.000 pr. starfsmann á ári. Gert er ráð fyrir áskrift í a.m.k. 6-12 mánuði, sjá hér
- Styrkt eru áskrift að stafrænum fræðslupökkum, sjá hér
Ítrekað er að launakostnaður fyrirtækja er aldrei hluti af þeim kostnaði námskeiða sem Landsmennt styrkir, þá er heldur ekki tekinn með kostnaður vegna veitinga, bókakaupa á námskeiðum. Styrkloforð stjórnar hverju sinni eru ávallt gerð upp og styrkur greiddur eftir að verkefnið hefur farið fram – eða námskeið hefur verið haldið. Slíku uppgjöri þarf að fylgja þátttakendalisti þar sem fram kemur félagsaðild starfsmanna og kvittanir fyrir staðfestum kostnaði. Tekið er á móti allt að 12 mánaða gömlum kvittunum/reikningum. Fyrirtæki geta fengið allt að 4 mkr. á ári í styrk. Landsmennt styrkir einnig eigin fræðslu fyrirtækja (innanhúsfræðslu) þar sem leiðbeinandi/kennari er jafnframt starfsmaður viðkomandi fyrirtækis. Gefin er út heimild um slík verkefni áður en námskeiðin eru haldin og fyrirtæki senda inn styrkumsókn í gegn um Áttina eins og með önnur aðkeypt námskeið. Um styrki til eigin fræðslu gilda sérstakar verklagsreglur sem má sjá hér;
Verklagsreglur vegna styrkja til eigin fræðslu fyrirtækja
Síðast uppfært í janúar 2024.