Verkefnið byggist á að lána mannauðsráðgjafa til fyrirtækja, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun.

Ráðgjafinn fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, dregur fram það sem vel er gert, gerir eða dýpkar greiningu á þörfum fyrirtækisins og samhæfir við önnur námskeið eða viðurkenndar fræðsluleiðir innan óformlega fræðslukerfisins.
– sjá nánar hér!

Dæmi um viðurkenndar fræðsluleiðir/námsleiðir er hægt að kynna sér á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins undir upplýsingum um námskrár.