Vegna náms-og kynnisferða

FræðslusjóðirLandsmennt

Nú þegar hausta fer fjölgar mjög fyrirspurnum vegna náms-og kynnisferða en Ríkis-og Sveitamennt veita styrki til slíkra ferða.  Reglur eru misjafnar milli fræðslusjóða en hér eru nokkur atriði sem hafa ber í  huga þegar umsóknum er skilað inn til Ríkis-eða Sveitamenntar:

  • Styrkurinn er til stofnana eða sveitarfélaga ekki einstaklinga
  • Stofnanir geta sótt um á fjögurra ára fresti
  • Sækja þarf um styrktarloforð áður en ferð er farin
  • Reikningar þurfa að vera á nafni stofnunar/sveitarfélags, ekki einstaklinga
  • Skila þarf inn lokauppgjöri eftir að ferð hefur verið farin ásamt öllum fylgigögnum
  • Passa þarf vel upp á að nauðsynleg fylgigögn fylgi umsókn til að afgreiðsla geti gengið vel fyrir sig, vöntun á gögnum getur tafið ferli umtalsvert.

Minnum einnig á að nú er hægt að sækja um sérstyrk til náms-og kynnisferða innanlands, sjá nánar á síðum sjóðanna.

Deildu þessari frétt