
Þrjár konur af Suðurnesjum í lykilstöðum fræðslusjóða
Víkurfréttir fjölluðu á dögunum um þrjár konur af Suðurnesjum sem gegna lykilhlutverkum í forystu stærstu fræðslusjóða landsins, þar á meðal Solveigu Ólöfu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landsmenntar ásamt þeim Lísbetu Einarsdóttur hjá Starfsafli og Selmu Kristjánsdóttur hjá Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks. Þær vinna náið saman að þróun starfsmenntunar og leggja áherslu á markvissa uppbyggingu hæfni sem styður við bæði einstaklinga og atvinnulíf. Fræðslusjóðirnir gegna þar mikilvægu hlutverki en á síðasta ári veittu þeir styrki að fjárhæð um tvo milljarða króna sem nýttust þúsundum einstaklinga og fjölda fyrirtækja til aukinnar þekkingar og færni.
Hér má lesa greinina í heild sinni í Víkurfréttum
Mynd sem fylgir frétt tók Silla Páls
Deildu þessari frétt


