Styrkir 2023

Fræðslusjóðir Landsmennt

Það er óhætt að segja að vel hefur verið sótt í sjóðina árið 2023, einstaklingar hafa aldrei verið fleiri og samanlögð styrkfjárhæð aldrei verið hærri, einungis er fækkun styrkja hjá Sjómennt.  Það eru fjölmörg verkefni hjá sjóðunum fjórum enda fjölbreyttur hópur félagsmanna hjá stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Það verður því spennandi að sjá hver þróunin verður á þessu ári sem fer vel af stað. Í byrjun árs var gerð breyting á reglum sjóðanna sem mun vonandi hvetja en frekar til náms ,  sjá nánar í fréttir á heimasíðunni: Landsmennt og Sjómennt  og Sveitamennt og Ríkismennt

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir styrkgreiðslur fræðslusjóðanna fyrir árið 2023 í samanburði við árið 2022.

Landsmennt, styrkir alls kr. 238.421.203,-

  • Greiddir styrkir til 3225 einstaklinga (fjölgun um 4,2% ) að upphæð kr. 230.954.600,- (hækkun um 3,8% )
  • Styrkir til fyrirtækja, stéttarfélaga og annara verkefna að upphæð kr. 74.666.003,- (hækkun um 0,7% ) og þar á bak við eru allt að 5094 einstaklingar (fjölgun um 10% ) og fjöldi verkefna 383. (fjölgun um 6,4% )

Sveitamennt, styrkir alls kr. 182.534.316,-

  • Greiddir styrkir til 1207 einstaklinga (fjölgun um 13,8% ) að upphæð kr. 67.718.264,- (hækkun um 9,1% )
  • Styrkir til Sveitarfélaga, stéttarfélaga og annara verkefna að upphæð kr. 114.816.052,- (hækkun um 57,3%) og þar á bak við eru allt að 3076 einstaklingar (fjölgun um 62% ) og fjöldi verkefna 170 (fjölgun um 24,5%)

Ríkismennt, styrkir alls kr. 29.433.817 –

  • Greiddir styrkir til 324 einstaklinga (fjölgun um 6,1%) að upphæð kr. 18.712.653,- (hækkun um 7,7% )
  • Styrkir til stofnana, fræðsluaðila og annara fræðsluverkefna að upphæð kr. 10.721.164,- (hækkun um 14,8%) og þar á bak við eru allt að 278 einstaklingar (fjölgun um 14,8% ) og fjöldi verkefna 16 (fjölgun um 9,1%)

Sjómennt, styrkir alls kr. 8.940.744,-

  • Greiddir styrkir til 93 einstaklinga (lækkun um 4,1%) að upphæð kr. 8.708.114,- (lækkun um 3,5% )
  • styrkir til fyrirtækja og annara fræðsluverkefna að upphæð 232.630,- (lækkun um 82,4% ) og þar á bak við eru allt að 48 einstaklingar (fækkun um 31,4%) fjöldi verkefna 6.  (fækkun um 36,8%)

Deildu þessari frétt