Skrifstofan opnar að nýju

Fræðslusjóðir Landsmennt

Skrifstofa Landsmenntar hefur aftur hafið starfsemi sína. Búið er að ráða inn nýjan starfsmann, Solveigu Ólöfu Magnúsdóttur.  Solveig er kennari að mennt með víðtæka reynslu af menntamálum lengst af verið deildarstjóri við Grunnskóla Siglufjarðar og Varmárskóla í Mosfellsbæ. Þá var hún um tíma formaður Skólastjórafélags Reykjaness og trúnaðarmaður auk þess að sitja í fræðslunefnd félagsins. Netfang hennar er solveig@landsmennt.is og símanúmer 599-1450.

Deildu þessari frétt