Skráning er hafin hjá NTV – 100% fjármögnuð námskeið

Fræðslusjóðir Landsmennt

Gerður hefur verið samningur við NTV skólann um fulla fjármögnun á sex námskeiðum/námsleiðum sem allt eru starfsþróunarmiðuð og verkefnadrifin fjarnámskeið sem boðið er upp á í samstarfi við aðildarfélög Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar. Félagsmenn aðildarfélaga sjóðanna munu fá námskeið að fullu niðurgreidd.

Öll námskeiðin (námsefni, verkefnavinna, verkefnaskil og samskipti) eru inni á nemendaumhverfi NTV skólans í gegnum nettengingu.

Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á: http://www.ntv.is/is/um-ntv/yfirlit-flokka/view/stettarfelags-namskeid

Einstaklingar skrá sig hjá NTV skólanum og mun skólinn senda reikninga beint á skrifstofu fræðslusjóðanna.

Skráning á námskeið: http://www.ntv.is/is/namskeid/nam-i-bodi-stettarfelags

Deildu þessari frétt