PCC BakkiSilicon hf. fær Fræðslustjóri að láni

Fræðslusjóðir Landsmennt

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við PCC BakkaSilicon hf. Landsmennt fjármagnar verkefnið ásamt Iðunni fræðslusetri og Þekkingarnet Þingeyinga sér um fræðslugreininguna, starfsmenn eru 131 talsins sem starfa meðal annars í verksmiðju, viðhaldsdeild, tæknideild og innkaupa-og útflutningsdeild fyrirtækisins.

PCC BakkiSilicon hf. tók til starfa á Íslandi árið 2018 og er ein fullkomnasta kísilmálmverksmiðja heims með verksmiðjur í 17 löndum og alls 3200 starfsmenn.

Verkefnið felur það í sér að fræðslusjóður leggur til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og býr til fræðsluáætlun byggða á greiningunni.

Deildu þessari frétt