Nýjar reglur um úthlutun einstaklingsstyrkja

FræðslusjóðirLandsmennt

Stjórnir Lands-, Ríkis-, Sjó- og Sveitamenntar hafa samþykkt breytingar á reglum um úthlutun einstaklingsstyrkja. Nýju reglurnar taka gildi 1. ágúst 2026 og munu gilda um öll námskeið sem hefjast eftir þann tíma. Helstu breytingarnar lúta að styrkjum vegna tungumálanáms og náms erlendis.

Hámark á styrkjum til tungumálanáms lækkar
Samkvæmt nýjum reglum verður hámarksstyrkur sem einstaklingur getur fengið vegna tungumálanáms 180.000 krónur á almanaksári. Þá verður ekki lengur heimilt að nýta uppsafnaðan rétt til að standa undir slíkum námskostnaði.

Takmarkanir á námi erlendis
Einnig verður breyting á styrkjum til náms erlendis. Framvegis verður slíkt nám ekki styrkt, nema þegar um er að ræða nám við viðurkennda háskóla.
Ákvörðunin er meðal annars byggð á því að sjóðurinn er innlendur og fjármagnaður með iðgjöldum samkvæmt kjarasamningum. Markmið hans er að styrkja hæfni einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði.

Nýju reglurnar eru liður í endurskoðun á starfsemi sjóðanna með það að markmiði að tryggja skilvirkari úthlutun styrkja og betri nýtingu fjármuna.

Mynd með frétt: https://pixabay.com/

Deildu þessari frétt