NTV skólinn – námskeið á ensku, pólsku og íslensku
NTV skólinn, í samstarfi við Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt býður félagsmönnum aðildarfélaga sjóðanna upp á Skrifstofuskóla NTV í fjarnámi á ensku, pólsku og íslensku. Einnig verður námskeiðið Bókhald grunnur boðið samhliða.
Námskeiðin eru á tilboðsverði til félagsmanna og styrkt að auki með einstaklingsstyrkjum, sem eru 90% eða að hámarki kr. 130.000,-.
Námskeiðunum verður skipt í tvo hluta, „Skrifstofuskóli NTV – Grunnur“, 9 vikna námskeið sem verður í boði á haustönn 2021 og „Skrifstofuskóli NTV – Framhald“, 6 vikna námskeið sem haldið verður í byrjun næsta árs. Aðilar sem taka grunnnámskeiðið, sem er með áherslu á tölvufærni og almenna skrifstofufærni, hafa val um að skrá sig á framhaldsnámskeið eftir áramótin, sem verður með áherslu á bókfærslu og reikningshald.
NTV býður námskeiðin á sérstöku tilboðsverði og stefnt er að því að þau hefjist 18. október nk.
Námskeið |
Tungumál |
Vikur | Tilboðsverð | Byrjar |
Lýkur |
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur |
Íslenska | 9 | 149.000 | 18.10.21 | 17.12.21 |
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur |
Enska |
9 | 149.000 | 18.10.21 |
17.12.21 |
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur |
Pólska |
9 | 149.000 | 18.10.21 |
17.12.21 |
Bókhald grunnur |
Íslenska | 7 | 149.000 | 18.10.21 |
03.12.21 |
Nánari lýsingu á námskeiðunum og skráningar:
SZKOŁA BIUROWA NTV – KURS ONLINE
OFFICE AND COMPUTER SKILLS – ONLINE COURSE
SKRIFSTOFUSKÓLI GRUNNUR – FJARNÁM
Deildu þessari frétt