Menntadagur atvinnulífsins í Hörpu 2020

Fræðslusjóðir Landsmennt

Menntadagur SA var haldinn í Hörpu í gær þann 5. Febrúar.
Menntadagurinn er árlegur viðburður en að þessu sinni var fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum.

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrirtækjum sem skara fram út í fræðslu-og menntamálum. Orkuveita Reykjavíkur er Menntafyrirtæki ársins og Samkaup hlaut Menntasprota ársins. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra afhentu verðlaunin.
Á vef www.sa.is má lesa nánar um Menntadag atvinnulífsins og viðurkenningahafana.

Að deginum standa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þess. Landsmennt styrkti viðburðinn eins og undanfarin ár ásamt fleiri fræðslusjóðum atvinnulífsins.

Deildu þessari frétt