Menntadagur atvinnulífsins 2022

Fræðslusjóðir Landsmennt

Menntadagur SA var haldinn í Hörpu í dag.

Menntadagurinn er árlegur viðburður en að þessu sinni var yfirskrift menntadagsins „stafræn hæfni í íslensku menntakerfi og atvinnulíf“

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrirtækjum sem skara fram út í fræðslu-og menntamálum. Samkaup er Menntafyrirtæki ársins og Gentle Giants – Hvalaskoðun á Húsavík hlaut Menntasprota ársins. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands afhenti verðlaunin.

Á vef www.sa.is  má lesa nánar um Menntadag atvinnulífsins og viðurkenningahafana.

Að deginum standa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þess. Landsmennt styrkti viðburðinn eins og undanfarin ár ásamt fleiri fræðslusjóðum atvinnulífsins.

Deildu þessari frétt