Kröfur vegna íslenskunáms

Fræðslusjóðir Landsmennt

Nýr rammi um styrkhæfni vegna íslenskunáms hefur nú tekið gildi. Í góðu samstarfi sjóða og annarra hlutaðeigandi var skerpt á viðmiðum og kröfum til fræðsluaðila og leiðbeindenda.

Styrkhæfni í íslenskukennslu

Á við um allt nám, námskeið og einkakennslu. Aðgangur að öppum í íslensku eru einnig styrkhæf falli þau að viðmiðum sjóðsins um starfstengt nám.

Viðmið sjóða um hæfi leiðbeinanda

Leiðbeinandi íslenskunámskeiða, íslenskunáms eða einkakennslu sem starfar annarsstaðar en hjá viðurkenndum fræðsluaðila samþykktum af Mennta- og barnamálaráðuneytinu eða Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu,  verður að búa yfir neðangreindum hæfnikröfum og reynslu svo þjónusta viðkomandi teljist styrkhæf af starfsmenntasjóðum

Aðrar hæfnikröfur:
• Marktæk þekking á kennslu tungumála
• Reynsla af kennslu frá viðurkenndum fræðsluaðila
• Lokið námi á háskólastigi
• Fagleg vinnubrögð og metnaður til að skila góðri vinnu

Tilgreind hæfni og viðmið eiga einnig við um annað tungumálanám, námskeið og einkakennslu.

Umsókn er hafnað ef ofangreindar kröfur um viðmið, hæfi og hæfni eru ekki fyrir hendi.

Deildu þessari frétt