Dale á milli starfa – LIVE ONLINE
Félagsmenn aðildarfélaga Landsmenntar, Sjómenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar fá námskeiðið að fullu niðurgreitt
Sérsniðið Dale Carnegie námskeið fyrir þá sem eru á milli starfa eða í leit að nýjum atvinnutækifærum. Settu eldmóð í atvinnuleitina, virkjaðu styrkleikana þína og stækkaðu tengslanetið.
Tveir alþjóðlega vottaðir Dale Carnegie þjálfarar leiða þetta 6 skipta námskeið sem er einu sinni í viku í tvo og hálfan tíma í senn. Webex þjálfunarumhverfið býður upp á þátttöku í rauntíma þar sem verkefnavinna, coaching og umræður fara fram á líflegan máta. Sérstakur tæknilegur aðstoðarmaður sér um að lágmarka tæknitruflanir og að enginn lendi í vandræðum með tengingar.
Nánari upplýsingar og skráning er hér: https://www.dale.is/bokanir
Þátttakendur skrá sig á síðu Dale Carnegie og setja í skilaboð hvaða fræðslusjóði þeir tilheyra. Reikningur er sendur beint á skrifstofu fræðslusjóðanna.
Deildu þessari frétt