Breyting á reglum Sveitamenntar: Aukin sveigjanleiki í náms- og kynnisferðum

FræðslusjóðirLandsmennt

Stjórn Sveitamenntar hefur samþykkt breytingu á reglum um styrki til náms- og kynnisferða. Hingað til hafa sveitarfélög og stofnanir einungis getað fengið styrk til slíkra ferða innan- og utanlands á fjögurra ára fresti. Með breytingunni verður nú mögulegt að fá aukastyrk til námsferða innanlands, að því tilskildu að áður hafi verið nýttur styrkur til ferðar utanlands á sama fjögurra ára tímabili. Styrkurinn getur numið allt að 90.000 krónum á einstakling á fjögurra ára fresti. Breytingin gildir í eitt ár í tilraunaskyni og verður reglan endurskoðuð að tímabilinu loknu. Með þessu vill stjórn Sveitamenntar auka sveigjanleika og styðja enn  frekar við starfsþróun og faglegt nám. Sjá nánar

Mynd fengin frá: https://asviral.com/12-photos-about-iceland-that-prove-its-different-from-the-world/

 

 

Deildu þessari frétt