
Breyting á reglum Ríkismenntar: Aukin sveigjanleiki í náms- og kynnisferðum
Stjórn Ríkismenntar hefur samþykkt breytingu á reglum um styrki til náms- og kynnisferða. Hingað til hafa stofnanir á vegum ríkisins einungis getað fengið styrk til slíkra ferða innan- og utanlands á fjögurra ára fresti. Með breytingunni verður nú mögulegt að fá aukastyrk til námsferða innanlands, að því tilskildu að áður hafi verið nýttur styrkur til ferðar utanlands á sama fjögurra ára tímabili. Styrkurinn getur numið allt að 90.000 krónum á einstakling á fjögurra ára fresti. Breytingin gildir í eitt ár í tilraunaskyni og verður reglan endurskoðuð að tímabilinu loknu. Með þessu vill stjórn Ríkismenntar auka sveigjanleika og styðja enn frekar við starfsþróun og faglegt nám. Sjá nánar
Mynd fengin frá: 12 Photos about Iceland that prove it’s different from the world! – AsViral
Deildu þessari frétt


