Afmælisráðstefna Áttarinnar

FræðslusjóðirLandsmennt

Í tilefni af afmæli starfsmenntasjóðanna og 10 ára afmæli Áttarinnar, sameiginlegrar vefgáttar sjóðanna, blásum við til veglegrar ráðstefnu þann 18. september næstkomandi. Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík og að henni standa þeir starfsmenntasjóðir sem sameinast um rekstur Áttarinnar.

Allir áhugasamir velkomnir en skráning er nauðsynleg, sjá hér

Afmælisfundur sjóða Grand hótel í Háteig-sal, fimmtudaginn 18.september 2025 kl. 13:30 – 16:00

Dagskrá

Opnun: Þór Pálsson

Stofnun sjóða: Aðalsteinn Árni Baldursson

Aukin hæfni á íslenskum vinnumarkaði – mikilvægi starfsmenntunnar: Maj-Britt Hjördís Briem

Frá brýnni þörf að farsælu ferli: Selma Kristjánsdóttir

Starfsþróun – Ferðalag í tíma: Lísbet Einarsdóttir

Innslög frá:  Jóhönnu L. Friðriksdóttur mannauðsstjóra Ölgerðarinnar, Pálma H. Ingólfssyni verkefnastjóra fræðslu- og heilbrigðis hjá Brim, Helgu F. Sæmundsdóttur framkvæmdastjóra mannauðssviðs Hornsteins og Dagbjörtu Helgadóttur sviðssjóra mannauðs AÞ-Þrifa.

Panelumræður í umsjón Skapta Ólafssonar með Jónínu Magnúsdóttur framkvæmdastjóra mannauðsviðs Blue Car rental, Vali Hólm fræðslustjóra Elko, Fanneyju Þórisdóttur fræðslustjóra Bláa Lónsins og Svövu Þorsteinsdóttur, fræðslustjóra Heimilistækja.

Ráðstefnustjóri er Þór Pálsson

Veitingar og tengslamyndun

Deildu þessari frétt