Tilbúnar fræðslukannanir Hæfniseturs

FræðslusjóðirLandsmennt

Fyrirtæki geta nú kannað fræðslu- og þjálfunarþarfir starfsfólks með tilbúnum könnunum sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur opnað á stafrænu vinnusvæði sínu Hæfni – Fræðsluefni. Notkunin kostar ekkert og er öllum heimil, hvort sem fyrirtækið starfar í ferðaþjónustu eða annarri atvinnugrein.
Kannanirnar eru sniðnar að ólíkum starfssviðum ferðaþjónustunnar og þeim fylgir að auki starfsánægjukönnun. Stjórnandi velur sniðmát, breytir spurningum eftir því sem á við í eigin rekstri og sendir könnunina síðan á starfsfólk. Allar kannanirnar eru til bæði á íslensku og ensku.
Spurt er meðal annars um:
• verklag og samstarf
• þjónustu og samskipti
• fagþekkingu
• öryggi
• stafræna hæfni
Tilgangurinn er að stjórnendur sjái hvar þörfin er mest áður en tíma og fé er varið í námskeið og þjálfun. Þannig má tengja fræðsluna betur við störfin sjálf og markmið fyrirtækisins.
Kannanirnar taka mið af ferðaþjónustu en uppbyggingin er almenn. Fyrirtæki í öðrum greinum geta því nýtt sömu grind og lagað spurningarnar að eigin störfum og hæfnikröfum.

Styrkt af starfsmenntasjóðum og unnið með fyrirtækjum
Fyrirtæki úr ólíkum greinum ferðaþjónustunnar komu að þróun kannananna svo þær endurspegli raunveruleg störf og fræðsluþarfir. Verkefnið hlaut þróunarstyrk frá þremur starfsmenntasjóðum: Starfsafli, Landsmennt og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks.

 

Deildu þessari frétt