
Vegna náms-og kynnisferða
Nú þegar hausta fer fjölgar mjög fyrirspurnum vegna náms-og kynnisferða en Ríkis-og Sveitamennt veita styrki til slíkra ferða. Reglur eru misjafnar milli fræðslusjóða en hér eru nokkur atriði sem hafa ber í huga þegar umsóknum er skilað inn til Ríkis-eða Sveitamenntar:
- Styrkurinn er til stofnana eða sveitarfélaga ekki einstaklinga
- Stofnanir geta sótt um á fjögurra ára fresti
- Sækja þarf um styrktarloforð áður en ferð er farin
- Reikningar þurfa að vera á nafni stofnunar/sveitarfélags, ekki einstaklinga
- Skila þarf inn lokauppgjöri eftir að ferð hefur verið farin ásamt öllum fylgigögnum
- Passa þarf vel upp á að nauðsynleg fylgigögn fylgi umsókn til að afgreiðsla geti gengið vel fyrir sig, vöntun á gögnum getur tafið ferli umtalsvert.
Minnum einnig á að nú er hægt að sækja um sérstyrk til náms-og kynnisferða innanlands, sjá nánar á síðum sjóðanna.
Deildu þessari frétt


