
Ný regla um styrki til fræðslusafna og stafrænnar fræðslu RM SM og SJM
Í samræmi við reglur Landsmenntar taka í gildi frá og með 1. ágúst nýjar reglur um styrki til fræðslusafna og stafrænnar fræðslu hjá Ríkis-Sjó-og Sveitamennt. Samkvæmt breytingunum verða öll upptekin fræðsla, svo sem myndbönd og annað stafrænt margmiðlunarefni, auk fræðslusafna og fræðsluappa, styrkt um 50% af reikningi í stað 90% líkt og verið hefur.
Á móti breytingunni er umsóknarferlið einfaldað. Framvegis þarf einungis að skila inn grunngögnum með umsókn og ekki lengur gerð krafa um innleiðingaráætlun, fræðsluáæltun eða greinargerð eins og áður.
Deildu þessari frétt


