Sveitamennt

Fræðslusjóðir Landsmennt

Það sem af er árinu hefur Sveitamennt afgreitt 85 umsóknir frá Sveitarfélögum og stofnunum þeirra að upphæð kr. 41.762.582,- og á bak við þessi fræðsluverkefni eru 2011 starfsmenn.

Meðal verkefna eru fjölmörg námskeið samkvæmt fræðsluáætlunum stofnana sveitarfélaga sem mörg hver hafa unnið sínar fræðsluáætlanir í kjölfar verkefnisins Fræðslustjóra að láni.
Einnig eru verkefni sem tengd eru náms-og kynnisferðum, ráðstefnum, námskeiðum erlendis og innanlands.

Endilega að kynna sér möguleikana á heimasíðu sjóðsins eða hringja á skrifstofuna í síma 599-1450, þar sem Kristín og Hulda svara með ánægju öllum fyrirspurnum.

Deildu þessari frétt